Gogoblaster farsímalausnir verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði
Samstarf gogoyoko og Tækniþróunarsjóðs sem hófst árið 2009 og var ætlað að þróa farsímamiðaðar tæknilausnir hefur borið hagnýtan ávöxt í nýrri vöru sem hefur nú verið sett á markað. Varan "gogoyoko selections" er klæðskerasniðin lagalistaþjónusta fyrir þjónustufyrirtæki og auðveldar þeim að notfæra sér tónlist til að skapa og styðja við þá upplifun sem þau vilja að viðskiptavinir þeirra hafi af vörumerki þeirra á afgreiðslustöðum á áreynslulausan hátt.
Heiti verkefnis: Gogoblaster farsímalausnir - Gogoyoko Mobile Solutions
Verkefnisstjóri: Alison MacNeil, Gogoyoko ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 27 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0380
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Þjónustan er tvíþætt í því að leysa vandamál fyrirtækja. Þau njóta annars vegar yfirgripsmikillar sérfræðiþekkingar gogoyoko á sviði tónlistar til að hanna nákvæmlega stemmninguna sem þörf er á fyrir það margbreytilega umhverfi sem daglegur rekstur fyrirtækja krefst til að mæta eftirspurn viðskiptavina eftir þjónustu og upplifun hverju sinni. Þau njóta hins vegar viðamikilla tæknilausna sem þróaðar hafa verið í samvinnu við Tæknirþróunarsjóð sem sjá til þess að fyrirtækin hafi þá margvíslegu afspilanamöguleika sem nútímatækniumhverfi krefst og þjónustan né nothæf á breiðum skala tækja- og hugbúnaðar.
Nýjungar sem má nefna í tæknilausnum eru sjálfvirkar uppfærslur tónlistar, tímastilling tilkynninga og lagalista, gagnvirkt upplýsingakerfi um notkun viðskiptavinar og birtingakerfi fyrir auglýsingar sem blandast við en er ekki háð lagaþjónustunni sjálfri. Afraksturinn er þjónusta sem mætir tónlistarlegum og tæknilegum þörfum fyrirtækja á hátt sem er fyrirhafnarlaus og hagkvæmari heldur en þær lausnir sem áður hafa verið í boði.
Ávinningur verkefnisins í heild sinni nær til stórs hóps sem gogoyoko leitast við að þjónusta. Fyrirtækjum standa til boða þægilegar og margþættar leiðir sem áður hafa ekki verið mögulegar við að gera upplifun viðskipta sinna sem ánægjulegasta og hugmyndafræði gogoyoko um sanngirni gagnvart tónlistarmönnum endurspeglast í þessari löglegu leið til þess að nota tónlist þeirra á opinberum vettvangi. Nákvæmt utanumhald á notkun á höfundarréttarvörðu efni auðveldar listamönnum, höfundarréttarsamtökum og fyrirtækjum að sjá til þess að greiðslur á höfundarréttargjöldum skili sér til tónlistarmanna og útgáfufyrirtækja í nákvæmu samræmi við spilun á efni þeirra opinberlega.
Kerfið hefur nú þegar verið tekið í notkun hjá meira en 70 fyrirtækjum og gogoyoko fékk fjármögnun frá NSA 2012 vegna þessa verkefnis.