Scintilla ilmandi textíll - verkefnislok
Scintilla þróaði þrjá ilmi sem voru unnir með innblástri úr íslenskri náttúru. Þeir heita, Rain and deep blue water, Wilde thyme and blueberries og Westwinds and silent sands. Ilmirnir hafa samheitið "Scents from Icelands Westfjords".
Hönnuð var lína af textíl sem í er sloppur, púðar, töskur, fatapokar og herðatré sem klædd eru textíl.
Heiti verkefnis: Scintilla ilmandi textíll
Verkefnisstjóri: Linda Björg Árnadóttir, Scintilla ehf.
Tegund styrks: Frumherjastyrkur
Styrkár: 2010-2011
Fjárhæð styrks: 9,02 millj. kr.
Tilvísunarnúmr Tækniþróunarsjóðs: 100610121
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Hverjum ilmi fyrlgir litur þannig að þær vörur sem ilma af "Rain and deep blue water" eru bláar þær sem ilma af Westwinds and silent sands eru brúnar og vörur sem ilma af Wilde Thyme and Blueberries eru grænar.
Scintilla hannaði og lét frameiða gæða ilmkerti með hverjum ilmi og eru þau væntanleg í verslanir í nóvember.
Scintilla hefur einnig hannað baðvörur fyrir hótel með sömu nöfnum og ilmum. Það eru litlar flöskur af sjampói, hárnæringu, sturtugeli og litlar sápur.
Þar sem Scintilla á þessa ilmi sem þróaðir voru þá er ekkert því til fyrirstöðu að þróa fleiri vörur með ilmi s.s. húsilmvatn og snyrtivörur fyrir almennan markað.
Scintilla hefur farið í samstarf við Bláa lónið og hannað vörulínu af ilmandi baðtextíl, handklæðum, töskum, púðum og kertum. Ilmurinn sem notaður verður er einn af þeim ilmum sem Scintilla þróaði í þessu verkefni með smá breytingum. Einnig verður framleitt ilmkerti fyrir Bláa lónið með sama ilmi. Vörurnar verða merktar báðum vörumerkjum.
Stefnt er að því að kynna Bláalónslínuna á Hönnunarmars 2013 og verður þá búið að framleiða línuna. Þessi lína verður til sölu í öllum verslunum Bláa lónsins.
Þetta verkefni hefur gefið Scintilla tækifæri til að þróa vörulínu sem er einstök og gefur fyrirtækinu margvísleg tækifæri. Samstarfið við Bláa lónið er fyrsta verkefnið þar sem náðst hefur að selja niðurstöður verkefnisins en markmiðið er að leita eftir samstarfi við fleiri aðila ásamt því að framleiða eigin línu.
Afrakstur
Afrakstur verkefnisins eru vörur sem sumar eru komnar í farmeiðslu eða eru á leiðinni. Scintilla scented textíles línan fer í framleiðslu þegar búið verður að selja hana og fjármagna framleiðsluna.
Þrír ilmir, "Westwinds and silent sands", "Rain and deep blue water", og "Wilde thyme and blueberries".
Þjár tegundir ilmkerta sem ilma af ilmunum sem nefndir eru að ofan.
Scintilla hotel Toiletries með ilmunum sem eru nefndir að ofan.
Scintilla scented textiles, sloppur, fatapoki, herðatré, nærfatatöskur, baðtöskur og púðar.
Scintilla for the Blue Lagoon, handklæði, þvottapoki, púðar, sloppur, taska á öxl, baðtaska og kerti.
Fyrirlestrar um verkefnið hafa verið haldnir í Listaháskóla íslands.
RUV útvarpsviðtal um verkefnið í morgunútvarpinu.
http://gamla.lhi.is/2011/01/26/scintilla-ilmandi-textill/
http://lhi.is/verk/nytt-verkefni-311/