PenXpress Zyme - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði
Einkaleyfisvarða Pensímtæknin felur í sér notkun trypsína úr þorski í snyrtivörur og lyf. Í verkefninu PenXpressZyme voru þróuð og framleidd tjáð afbrigði þorskatrypsíns og endurbættar afleiður þeirra til notkunar í læknisfræðilegum tilgangi. Virkt afbrigði trypsíns I var fengið með framleiðslu í tveimur mismunandi kuldakærum tjáningarkerfum, Pseudoalteromonas haloplanktis TAC125 og ArcticExpress bakteríufrumum. Tjáð afbrigði trypsíns I voru fullhreinsuð með lífefnafræðilegum aðferðum. Eðlisvirkni tjáðu afbrigðanna var hærri en áður hefur fengist með tjáningu í öðrum kerfum. Tjáning í Pseudoalteromonas haloplanktis TAC125 próteinkerfinu gaf bestu niðurstöðurnar.
Heiti verkefnis: PenXpressZyme
Verkefnisstjóri: Ágústa Guðmundsdóttir (áður Jón Bragi Bjarnason), Ensímtækni ehf.
Þátttakendur: Ensímtækni ehf. og Raunvísindastofnun Háskólans
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 26,5 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0107
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Hagkvæmniúttekt verður gerð á iðnaðarframleiðslu trypsín I í Pseudoalteromonas haloplanktis TAC125 tjáningarkerfinu af fyrirtækjum sem sérhæfa sig í próteintjáningu í miklu magni. Líklegt er að ráðist verði í fínstillingu á tjáningarkerfinu til hámarka heimtur trypsíns I. Sem lífvirkar sameindir, munu tjáðu trypsínin mæta markaðslegri þörf fyrir ný lyf við psoriasis og exemi. Klínískar athuganir hafa sýnt jákvæð áhrif Pensím afurða á ofangreinda sjúkdóma.
Þorskslóg verður áfram mikilvægur forði fyrir einangrun trypsína til notkunar í snyrtivörur og lækningaafurðir (medical device). Tjáðu afbrigðin henta hins vegar almennt betur til að uppfylla lyfjastaðla og til frekari þróunar á Pensímafurðum. Þau munu einnig verða stöðugt forðabúr fyrir framleiðslu Pensímafurða. Í framtíðinni verða öll tækifæri sem Pensímtæknin felur í sér nýtt á sviði snyrtivara, lækningaafurða og lyfja í nánu samstarfi við alþjóðleg lyfjafyrirtæki.
Listi yfir afrakstur verkefnisins, sem og skýrslur, greinar og handrit
Pétursdóttir KÓ, Stefansson B, Bjarnason JB, Gudmundsdottir A. Production of recombinant cod trypsin. Poster session presented at: Engineering and Natural Sciences Research Symposium 2010 (R-VoN 2010). A Symposium on Current Research in Engineering and Natural Sciences at the University of Iceland; 2010 Oct 9-10; Reykjavík, Iceland.
Stefansson B, Helgadóttir L, Olafsdottir S, Guðmundsdóttir A, Bjarnason JB. Characterization of cold-adapted Atlantic cod (Gadus morhua) trypsin I - kinetic parameters, autolysis and thermal stability. Comparative Biochemistry and Physiology (2010) Elsevier Part B Vol. 155, Issue 2, 186-194.
Pétursdóttir KÓ, Stefansson B, Bjarnason JB, Gudmundsdottir A. Tjáning á þorskatrypsíni í örverum. Poster session presented at: Fimmtánda Ráðstefna um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands; 2011 Jan 5-6; Reykjavík, Iceland.
Stefansson B. Ensím úr þorski í náttúruvörur, snyrtivörur og lyf. Conference presentation at: Morgunverðarfundur hjá Matís - Líftækniiðnaður - Vaxtarbroddur framtíðarinnar?; 2011 Apr 14; Reykjavík, Iceland.
Stefansson B, Hilmarsson H, Gudmundsdottir A. Framleiðsla á þorska-trypsíni í örverum. Poster session presented at: Vísindavaka; 2011 Sept 23; Reykjavík, Iceland.
Pétursdóttir KÓ, Stefansson B, Hilmarsson H, Gudmundsdottir A. Comparison of trypsin I expression in two cold-adapted expression systems. Poster session presented at: Ráðstefna Efnís 2011; 2011 Nov 19; Reykjavík, Iceland.
Stefansson B. Introduction to Zymetech. Conference presentation at: Sjávarklasinn - Fjárfestingarfundur í Grindavík; 2012 Mar 15; Grindavík, Iceland.
Stefansson B. Introduction to Zymetech. Conference presentation at: Sjávarklasinn - Fullvinnslufundur í Bláa Lóninu; 2012 May 21; Grindavík, Iceland.
Pétursdóttir KÓ, Master thesis 2012, will be submitted in August 2012.
Manuscript in preparation, Expression of recombinant cod trypsin I in a psychrophilic protein expression system.