Lengi býr að fyrstu gerð - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Lokið er verkefninu - "Lengi býr að fyrstu gerð (TOPCOD)". Meginmarkmið verkefnisins var að þróa nýjar framleiðsluaðferðir til að lækka framleiðslukostnað og auka hagkvæmni í íslensku þorskeldi. Hérlendis er mögulegt að ala þorskseiði lengur við kjöreldisaðstæður á landi en hægt er í samkeppnislöndum okkar. Eldi á landi er, hins vegar, dýrt og það er því brýnt að þróa aðferðir til að fá hámarksafrakstur úr landeldishluta þorskframleiðslunnar.
Heiti verkefnis: Lengi býr að fyrstu gerð (TOPCOD)
Verkefnisstjóri: Albert Imsland, Akvaplan-Niva útibú á Íslandi
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Þátttakendur: Akvaplan-niva á Íslandi, Hólaskóli, Matís ohf., Hafrannsóknastofnun, eldisstöð, University of Portsmouth, Álfsfell ehf. og Þóroddur ehf.
Styrkár: 2008-2010
Fjárhæð styrks: 23,5 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 0813028
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Samband frumfóðrunar og langtíma vaxtargetu eldisþorsks var kannað og sýna niðurstöðurnar að tímabilið í kringum myndbreytingu, sérstaklega 20-40 d.e.k., virðist vera afgerandi fyrir langtíma vaxtargetu eldisþorsksins. Hægt er að bæta vöxt um 35% með því að nota kjöreldisferla á lirfustigi. Auðgun fæðudýra með lífvirkum peptíðum leiddi til umtalsvert hraðari þroska lirfa og unnt reyndist að greina afmörkuð líffæri og líffærahluta fleiri dögum fyrr í þroskaferli meðhöndlaðra samanborið við ómeðhöndlaðra lirfa.
Niðurstöður tilraunanna með mismunandi súrefnismettun (65-150%) í eldisvatni benda til þess að þorskseiði þurfi a.m.k. 100% súrefnismettun í eldisvatni til þess að ná hámarksvextir. Það er augljós ávinningur fyrir þorskeldisstöðvar af því að auka súrefnismettun úr 80% í 100%. Sömuleiðis sýna niðurstöður tilrauna með samspil koltvísýrings og ammoníaks í eldisvatni að þorskseiði séu mjög næm fyrir samhrifum þessara þátta. Í verkefninu var unnið að þróun aðferða til að stýra vexti og kynþroska hjá þorski með því að nýta ljóslotustýringu. Niðurstöðurnar benda til að hægt sé að auka vöxt verulega (20-30%) og seinka kynþroska um eitt ár með því að ala þorsk við stöðugt ljós frá nóvember til maí á öðru eldisári (þ.e. þegar þorskurinn er u.þ.b. 1000 - 1300 g). Unnið hefur verið að markaðsrannsóknum og reynt að rýna í framtíðarhorfur eldisins. Framleiðsla á þorski mun að öllum líkindum aukast töluvert á komandi árum en eigi eldið að vera hagkvæmt er mjög mikilvægt að lækka framleiðslukostnað á öllum stigum þar sem eldið er ekki hagkvæmt við núverandi aðstæður. Það er því afar brýnt að finna leiðir til þess að framleiða þorsksseiði með fulla vaxtargetu svo að þorskeldi geti blómstrað á Íslandi. Allar leiðir verði að skoða til bæta vaxtargetu íslenskra þorskseiða, því niðurstöður okkar sýna svo ekki verður um villst: að lengi býr að fyrstu gerð.
Listi yfir afrakstur verkefnisins, sem og skýrslur, greinar og handrit
- Imsland, A.K., 2008. En god start på livet betyr alt. Nytt fra Havbruk, 2008 (3-4), 1-2.
- Imsland, A.K. 2008. Production and challenges of juvenile cod production - on overview. Presented at "Nordic Cod farming Conference", Reykjavik, Iceland, 30 September-2 October 2008
- Imsland, A.K., Hansen, H., Roth, B., Foss, A., Vikingstad, E., Bjørnevik, M., Powell, M., Solberg, C. and Norberg, B. 2012. Short term exposure to continuous light delays sexual maturation and increases growth of Atlantic cod in sea pens. Aquaculture Research (in press).
- Thorarensen, H., Imsland, A.K., Gunnarsson, S., Gústavsson, A., Arnarson, I., Árnason, J., Steinarsson, A., Björnsdóttir, R., 2011. The effect of water quality on the growth of Atlantic cod (Gadus morhua L.). Presented at "Go for cod", Bergen, 9-10 February, 2011.
- Björnsdóttir, R. 2011. Aukin lifun og gæði lirfa sjávarfiska í eldi. Málstofukynning við Háskólann á Akureyri 9.maí 2011
- Björnsdóttir, R., Heimisdóttir, H.L., Johannsdóttir, J.Þ., Steinarsson, A., Pétursdóttir, M., Thorarensen, H., Imsland, A.K. 2011. Live prey enrichment for improved quality of intensively reared cod larvae. Presented at "Cod farming in the Nordic counties", Reykjavík 21 September, 2011.
- Imsland, A.K., Hansen, H., Roth, B., Foss, A., Vikingstad, E., Bjørnevik, M., Powell, M., Solberg, C. and Norberg, B. 2011. Short term exposure to continuous light delays sexual maturation and increases growth of Atlantic cod in sea pens. Presented at "Cod farming in the Nordic counties", Reykjavík 21 September, 2011.
- Steinarsson, A., Imsland, A.K, Gunnarsson, S., Björnsdóttir, R., Jóhannsdóttir, J. and Thorarensen, H. 2011. The effect of early weaning strategy on growth potential and deformity incidence in farmed cod. Presented at "Cod Farming in Nordic Countries", Grand Hótel Reykjavík, 21. september 2011.
- Steinarsson, A., 2011. Growth potential of farmed cod. Oral presentation at"Cod Farming in Nordic Countries", Grand Hótel Reykjavík, 21 September 2011.
- Jóhannsdóttir, J.Þ., Þórarinsdóttir, E.E., Steinarsson, A., Magnússon, K.P., Björnsdóttir, R. 2011. Expression of key genes related to unspecific immune responses in cod larvae. V Presented at "Cod farming in the Nordic counties", Reykjavík 21 September, 2011.
- Steinarsson, A., 2011. Vaxtargeta eldisþorsks. Erindi á vinnufundi um stöðu fiskeldis á Íslandi og endurskoðun á stefnumörkun Landsambands fiskeldisstöðva frá 2009. Reykholti í Borgarfirði, 17.-18. nóvember 2011.
- Steinarsson, A., 2012. Growth potential of Atlantic cod. Oral presentation at "Cod Atlantic", Ocean Sciences Centre, Memorial University of Newfoundland, St. Johns Newfoundland, Canada, 28 September 2012.
- Jóhannsdóttir, J., Heimisdóttir, H.L., Hákonardóttir, K., Hrólfsdóttir, Steinarsson, A., Imsland, A.K., Thorarensen, H. and Björnsdóttir, R. Improved performance of Atlantic cod (Gadus morhua L.) larvae following enrichment using a fish protein hydrolysate. Fish and Shellfish Immunology (submitted).
- Thorarensen, H., Gústavsson, A., Gunnarsson, S., Arnarson, I., Árnason, J., Steinarsson, A., Björnsdóttir, R., Imsland, A.K. The effect of oxygen saturation on the growth and feed conversion of juvenile Atlantic cod (Gadus morhua L.). Aquaculture (submitted).
- Thorarensen, H., Imsland, A.K., Gunnarsson, S., Gústavsson, A., Arnarson, I., Árnason, J., Steinarsson, A., Björnsdóttir, R. The interactive effect of carbon dioxide and ammonia on the growth and feed conversion of Atlantic cod (Gadus morhua L.). Aquaculture (in prep.).