Rafræn vörumerkjaþróun - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Verkefninu "Rafræn vörumerkjaþróun" sem styrkt var af Tækniþróunarsjóði er nú lokið. Verkefnið fól í sér gerð markaðsefnis og mótun markaðsstefnu fyrir félagið á netinu. Lögð var áhersla á að nálgast viðskiptavini með myndrænu efni og byggja upp samskipti við þá í gegnum féttabréf, vefsíðu og samfélagsmiðla.
Afurðir og niðurstöður verkefnisins munu áfram styðja við aukinn vöxt vörumerkisins á breskum markaði.
Heiti verkefnis: Rafræn vörumerkjaþróun Verkefnisstjóri. Hulda Hreiðarsdótir, Fafu ehf. Tegund styrks: Brúarstyrkur Fjárhæð styrks: 5 millj. kr. Styrkár: 2012 Tilvísunarnúmer Rannís. 120897-0611
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Helstu afurðir verkefnisins eru:
- Kynningarmyndbönd fyrir vefsíðu, fréttabréf og samfélagsmiðla.
- Ljósmyndir og kynningarefni
- Tímaritið PLAY!
- Vaxandi póstlisti
Listi yfir afrakstur verkefnisins
Fimm myndbönd um leik og framleiðslu.
Ljósmyndir sem sýna vöru í notkun í útileik og inni á leikskóla.
Tvö tölublöð af tímaritinu PLAY!