Íslenskur lífdísill - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Lokið er þriggja ára rannsóknarverkefninu Íslenskur lífdísill sem unnið var í samvinnu Lífdísils ehf, Orkugerðarinnar ehf, (áður Förgun ehf.) og Eyrarbúsins ehf. Í verkefninu var stefnt að því að byggja upp arðbæra lífdísilframleiðslu á Íslandi til frambúðar. Til þess að gera þetta mögulegt hefur Lífdísill ehf. þróað og bestað ferla sem sniðnir eru að lífdísilframleiðslu úr hráefni með mjög breytilega samsetningu, þar sem áhersla var lögð á sláturúrgang með óþekkta geymslu- og meðhöndlunarsögu. Orkugerðin ehf. hefur á sama tíma bestað vinnslu á hráfitu í því augnamiði að hún hentaði sem best til lífdísilframleiðslu í vinnsluferli Lífdísils ehf. Samtímis því hefur Eyrarbúið ehf. stuðlað að aukinni repjurækt með frumkvæði, ráðgjöf og tilraunaræktun á mismunandi yrkjum. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að stuðla að notkun endurnýjanlegs íslensks hráefnis til framleiðslu á innlendu eldsneyti sem miðar að auknu sjálfstæði Íslands með tilliti til orkunotkunar og aukinni verðmætasköpun fyrir íslenskt samfélag.
Heiti verkefnis: Íslenskur lífdísill
Verkefnisstjóri: Oddur Ingólfsson, Lífdísli ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 24 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090915-1804
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Öll helstu markmið verkefnisins hafa náðst og afraksturinn er nú þegar umtalsverður. Lífdísill ehf. starfrækir nú verksmiðju sem framleiðir lífdísil úr innlendum sláturúrgangi. Þetta lífdísileldsneyti er jafnt að gæðum, uppfyllir ströngustu Evrópustaðla og er þegar í almennri dreifingu í gegnum dreifingarnet N1. Hráefnið í þessa framleiðslu kemur nú allt frá Orkugerðini ehf. sem hefur bestað sína vinnsluferla til að hráefnið falli vel að framleiðsluferlum Lífdísils ehf. Einnig hefur verkefnið haft jákvæð áhrif á repjurækt á Íslandi og töluverður árangur hefur náðst á mörgum búum, bæði norðan- og sunnanlands. Þannig hefur tækniþróunarverkefnið lagt grunn að umtalsverðri framleiðslu á íslenskum lífdísli úr innlendu úrgangshráefni og áætlanir eru uppi um að auka framleiðsluna í um 1.500.000 L á næstu árum.
Verkefnið Íslenskur lífdísill hefur leitt til framleiðslu á hágæða íslenskum lífdísli úr úrgangi og sýnt að þessi vistvæna nálgun við framleiðslu á innlendu eldsneyti á mikla framtíð fyrir sér.
Listi yfir afrakstur verkefnisins:
- Þróaðir hafa verið ferlar sem eru sniðnir að lífdísilframleiðslu úr hráefni sem er mjög breytilegt í samsetningu, með áherslu á sláturúrgang með óþekkta geymslu- og meðhöndlunarsögu.
- Byggð hefur verið lífdísilverksmiðja sem framleiðir lífdísil sem uppfyllir alla staðla Evrópusambandsins (EN 1424:10-04).
- Íslenskur lífdísill sem unnin er úr sláturúrgangi er kominn í almenna dreifingu hérlendis.
- Vinnsluferli Orkugerðarinnar ehf. hafa verið bætt að því marki að sú hráfita sem unnin er þar hentar vel til lífdísilframleiðslu í verksmiðju Lífdísils ehf. Þannig hefur nýr markaður fyrir þennan hluta sláturúrgangsins myndast og rekstrargrundvöllur Orkugerðarinnar. styrkst.
- Aukinn árangur í repjurækt hérlendis má að nokkru leyti rekja til þessa verkefnis. Þó ræður þar mestu framtak einstakra bænda og erfitt að meta hversu mikil bein og óbein áhrif þetta verkefni hefur haft sem slíkt.
Skýrslur:
Guro Blakstad, Biodiesel production through transesterification of different raw material using NMR as reaction progress monitor, Háskóli Íslands, Reykjavík,2010.
Björg Hjaltested, Kristján Vigfússon, Elísabet Erdal, Ingvar Linnet, Margrét Lilja Ívarsdóttir, Mikael Arnarson, Rúnar Guðnason, Valdimar Haukur Hilmarsson, Stefnumótun fyrir Lífdísil ehf, Háskólinn í Reykjavík, 2010.