Hermun togbúnaðar - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Nýstofnað sprotafyrirtæki, Energy Efficient Trawling ehf., hefur þróað, með hjálp frumherjastyrks frá Tækniþróunarsjóði, tölvulíkön til hönnunar á toghlerum fyrir fiskveiðiskip. Tölvulíkönin gera kleift að hanna toghlera á stuttum tíma með nákvæmum straumfræðilíkönum. Notkun þeirra hefur sýnt fram á að hefðbundnir toghlerar eru óhagkvæmir og valda miklum olíukostnaði við fiskveiðar. Einnig hefur verið sýnt fram á að með endurhönnun er hægt að ná fram bættri nýtingu sem gæti leitt til töluverðs olíusparnaðar. Hins vegar er EET ehf. með nýstárlega toghlera í þróun sem eru mun hagkvæmari en hefðbundnir toghlerar. Ætlunin er að halda áfram þróun á komandi árum í samstarfi við innlenda notendur og framleiðendur. Fyrirtækinu mun vaxa á næstu árum og er áætlað við fyrirtækið starfi fimm til tíu manns.
Heiti verkefnis: Hermun togbúnaðar
Verkefnisstjóri: Arnar Ingólfsson, Fjölási ehf.
Þátttakendur: Fjölás ehf., Háskólinn í Reykjavík og Útgerðartækni ehf.
Tegund styrks: Frumherjastyrkur
Styrkár: 2011
Fjárhæð styrks: 5 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 110592
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Afrakstur verkefnisins:
- Reiknilegt straumfræðilíkan
- Aðferð til hönnunar og bestunar
- Straumfræðileg greining á hefðbundnum toghlera
- Endurhönnun á hefðbundnum toghlera
- Hönnun á nýstárlegum toghlerum
- Straumfræðileg greining á nýstárlegum toghlerum
Útgáfur:
- E. Jonsson, E. Hermannsson, M. Juliusson, S. Koziel, and L. Leifsson "Computational Fluid Dynamic Analysis and Shape Optimization of Trawl-Doors," 51st AIAA Aerospace Sciences Meeting including the New Horizons Forum and Aerospace Exposition, Grapevine, Texas, January 7-10, 2013
- E. Jonsson, L. Leifsson, and S. Koziel "Trawl-Door Performance Analysis and Design Optimization with CFD", 2nd Int. Conf. on Simulation and Modeling Methodologies, Technologies, and Applications (SIMULTECH), Rome, Italy, July 28-31, 2012.
- E. Jonsson, "Aerodynamic Optimization by Variable-Resolution Modeling and Space Mapping, " M.Sc. Thesis, Reykjavik University, May, 2012.