Ný sýklalyf - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Akthelia ehf. þróar sýklalyf sem byggja á því að örva varnir líkamans sjálfs gegn sjúkdómsvaldandi bakteríum. Meðferðin byggir á að gefa töflur um munn sem hvetja þekjufrumur og átfrumur til að framleiða efni sem eru sýkladrepandi. Virka efnið AKT10081 hefur sýnt virkni gegn smitsjúkdómum í nokkrum sýkingamódelum fyrir iðrasýkingar.
Heiti verkefnis: Ný sýklalyf
Verkefnisstjóri: Eiríkur Steingrímsson, Akthelia ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 29 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0155
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Markmið verkefnisins "Ný sýklalyf" var að leita vænlegustu ábendinganna til lyfjaþróunar fyrir virku efni félagsins. Leitin tók mið af þörfum markaðarins fyrir nýjar meðferðir og hvar markaðstækifæri lægju. Verkefnið fólst í að prófa virkni AKT10081 í nokkrum sýkingum í frumuræktum, sýkingamódelum og í mönnum. Því var virkni AKT10081 könnuð í sýkingamódeli fyrir iðrasýkingu af völdum bakteríunnar Clostridium difficile, sem oft nær sér á strik eftir sýklalyfjagjöf. Rannsóknirnar sýndu virkni lyfsins gegn sýklinum. Sýnt var fram á að AKT10081 eykur hæfni átfruma úr blóði manna til að drepa berklasýkla. Teknar voru saman upplýsingar um öryggi AKT10081 í aðdraganda klínískra rannsókna á áhrifum lyfsins í lyfjameðferð við berklum. Mikilvægur áfangi mun nást seint á árinu 2013 þegar fasa 2 rannsókn á áhrifum AKT10081 á berkla lýkur