EVA greiningarkerfið - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
Lokið hefur verið við verkefnið “Eva greiningarkerfið” sem var styrkt af Tækniþróunarsjóði. Verkefnið stóð yfir í eitt ár og nam styrkur frá sjóðnum tæpum 9,6 milljónum króna. Í verkefninu sem var unnið af RAMP ehf. og Háskólanum í Reykjavík var þróaður hermunar- og greiningarhugbúnaðar sem auðveldar mat á hagkvæmni við innleiðingu rafbíla og annarra vistvænna farartækja.
Heiti verkefnis: EVA greiningarkerfið
Verkefnisstjóri: Ágúst Valfells, Hákskólanum í Reykjavík og RAMP ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2012
Fjárhæð styrks: 9,587 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 120955-0611
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Í stuttu máli sagt notar hugbúnaðurinn raungögn um akstur bifreiða, sem byggja á gps-mælingum. Úr þessum gögnum má lesa upplýsingar, t.d. um staðsetningu, hraða og hröðun bifreiða yfir langt söfnunartímabil. Þessar upplýsingar segja til um hvernig bílum er ekið í raun og hvaða kröfur notandi gerir til þeirra. Fyrir sérhverja bifreið sem verið er að skoða er hægt að finna hliðstæða, vistvæna bifreið. Greiningarkerfið notar svo upplýsingar um raunverulegan akstur bifreiðar, ásamt orkulíkani, til að meta orkunotkun hliðstæðrar, vistvænnar bifreiðar sem ekið væri á sama hátt. Hægt er að taka tillit til hleðslustöðva ef um rafbíla er að ræða. Með þessu móti er hægt að segja til um í hvaða tilvikum vistvæn bifreið geti leyst hefbundna bifreið af hólmi, hvaða sparnaður eða kostnaður hljótist af því og hve miklu minni losun gróðurhúsalofttegunda verður.
Í verkefninu var unnið að því að útvíkka greiningarkerfið, frá því að taka einungis tillit til rafbíla til þess að skoða aðrar gerðir vistvænna bifreiða eins og tengiltvinnbíla. Hluti af því verki fólst í því að stilla af orkulíkanið til samræmis við gögn frá mælingum á vistvænum bílum. Að lokum var unnin viðskiptaáætlun fyrir RAMP ehf. um hvernig best sé að gera verðmæti úr vörunni.
Eva greiningarkerfið getur nýtist flotastjórum fyrirtækja við innleiðingu vistvænna bifreiða; stefnumótendum og stjórnendum sveitarfélaga við að búa í haginn fyrir vistvænar bifreiðar; rekstraraðilum og hönnuðum dreifiveitna og samgöngukerfa við að byggja upp innviði fyrir rafbíla og tengiltvinnbíla; og aðilum í bílgreinum við að undirbúa markaði fyrir innleiðingu vistvænna bifreiða.
Listi yfir afrakstur verkefnisins:
1. Eva greiningarkerfið. Hugbúnaður.
2. Eva greining á hluta bifreiðaflota Reykjavíkurborgar. Fyrsta greiningin þar sem tekið er tillit til tengiltvinnbíla.
3. Tæknileg skýrsla um Eva greiningarkerfið.
4. Viðskiptaáætlun RAMP ehf.