Bragðefni úr sjávarfangi með gerjun - verkefnislok

11.7.2013

ArcTract hefur um nokkurt skeið unnið að þróun fiskibragðefna með nýstárlegri gerjunartækni. Starfssemi fyrirtækisins, sem staðsett er á Ísafirði, hefur gengið vel og með hjálp Tækniþróunarsjóðs hefur ArcTract unnið að vinnsluaðferðum sem miðast að því að drýgja nýtingarmöguleika aukaafurða frá fiskvinnslu. Með þessum hætti er því útlit fyrir að sá hluti aflans sem einna lægst verð fékkst áður fyrir, verði að sérlega verðmætri og sérhæfðri vöru.

Heiti verkefnis: Bragðefni úr sjávarfangi með gerjun
Verkefnisstjóri: Jóhannes Karl Kárason, ArcTract ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2012
Fjárhæð styrks: 10 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 120831-0611

litid T-logoVERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

Vörur fyrirtækisins eru fyrst og fremst ætlaðar erlendum mörkuðum, matvælaframleiðendum og stórnotendum.  Hingað til hafa viðtökur verið góðar og hefur talsverðs áhuga gætt fyrir nýjum fiskafurðum frá Íslandi. 

Sú þróunarvinna sem ArcTract hefur staðið að og það söluátak sem við tekur, er því að mati forsvarsmanna, mikilvægt skref í átt að sameiginlegu langtímamarkmiði útvegsins að auka verðmæti sjávarfangs og auka fjölbreytni í vinnslu hráefnis.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica