Endurgreiðslulyklar í Bandaríkjunum - verkefnislok
Kerecis er íslenskt lækningavörufyrirtæki sem þróar, framleiðir og markaðssetur vörur til meðhöndlunar á sköðuðum líkamsvef og húð. MariGen Wound tilheyrir MariGen Omega3 vörurlínu félagsins og er seld til sjúkrahúsa gegnum dreifingaraðila. Húðmeðhöndlunarvörur Kerecis má kaupa undir nafninu MariCell Omega3 í flestum íslenskum apótekum.
Heiti verkefnis: Endurgreiðslulyklar í Bandaríkjunum
Verkefnisstjóri: Guðmundur F. Sigurjónsson, Kerecis ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2012
Fjárhæð styrks: 10 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 120933-0611
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Tækniþróunarsjóður hefur undanfarin ár styrkt verkefni félagsins og er verkefninu ”Endurgreiðslulyklar í Bandaríkjunum” nú lokið. Styrkveitingar Tækniþróunarsjóðs eru mikilvægur hluti af rekstri Kerecis og hafa í endurtekin skipti gert fyrirtækinu kleift að afla hlutafjár frá áhættufjárfestum með því að minnka áhættu þeirra.
Afrakstur verkefnisins:
- Greiningu á endurgreiðslukerfi Bandaríkjanna
- Skipulagning sölu í Bandaríkjunum sem undanfari umsóknar um endurgreiðslulykil
- Gerð umsóknar um endurgreiðslulykil í Bandaríkjunum