Myndrænt frammistöðumat fyrir skóla - verkefnislok
Myndrænt frammistöðumat er ný eining í upplýsingakerfið InfoMentor sem þróuð var með styrk frá Tækniþróunarsjóði. Einingin styrkir kerfið alþjóðlega og gefur Mentor enn frekara samkeppnisforskot í Norður-Evrópu.
Heiti verkefnis: Myndrænt frammistöðumat fyrir skóla
Verkefnisstjóri: Vaka Óttarsdóttir, Mentor ehf.
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur í markáætlun um betri lausnir fyrir minna fé
Styrkár: 2011
Fjárhæð styrks: 9,7 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 110757-061
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Þörfin fyrir einfaldar og góðar greiningar á skýran og myndrænan hátt er mikil meðal viðskiptavina okkar, sérstaklega á sænska markaðnum. Með þessari nýju einingu verður upplýsingagjöf til stjórnvalda einfaldari og skilvirkari auk þess sem skólastjórnendur eiga auðveldara með að greina veikleika og grípa fljótt til aðgerða ef styrkja þarf ákveðinn einstakling eða hóp innan skólans. Þá eiga nemendur gjarnan auðveldara með að lesa úr myndrænum niðurstöðum en tölulegum niðurstöðum eða löngum textum.
Með hagnýtingu þessa verkfæris næst fagleg yfirsýn yfir námsframmistöðu nemenda á breiðum grundvelli. Sérfræðingar í skólastarfi geta nýtt sér verkfærið til aukinna rannsókna og samanburðar á skólastarfi. Gera má ráð fyrir verulegri aukningu á þekkingu á áhrifum ýmissa þátta á námsframmistöðu og líðan nemenda.
Einingin var sett á markað í Svíþjóð nú í haust og hlaut strax mikil og góð viðbrögð. Um 300 skólar eru þannig farnir að nýta sér þessa nýjung og þar sem áhuginn er töluverður í Svíþjóð eru tekjumöguleikar af þessari einingu verulega miklir. Á Íslandi er vinna hafin við að máta sænsku lausnina við nýju aðalnámskrána og meta hvernig lausnin muni nýtast best hér á landi.