Tungumálamiðstöðin í Graz

European Centre for Modern Languages

Fyrir hverja?

Kennara og starfsmenn sem koma að tungumálakennslu.

Til hvers?
Stuðningur við nám og kennslu í tungumálum, t.d. styrkjum til að sækja námskeið/vinnustofur.

Umsóknarfrestur 
Það eru engir umsóknarfrestir heldur er alltaf opið fyrir umsóknir. Frekari upplýsingar er að finna á síðu Tungumálamiðstöðvarinnar .

Hvert er markmiðið?

Tungumálamiðstöðin er stofnun á vegum Evrópuráðsins. Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða/ vinnustofa (workshops) í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvíslegum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumálakennslu í tengslum við vinnustofur/námskeið. Aðildarlönd geta almennt sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðarlausu.

Ný áætlun 2020-2023

Nýja tímabilið er tileinkað Nýsköpun í tungumálakennslu: breyttu samhengi, framþróun á færni. ECML hefur alltaf fylgst að með nýjum áherslum í tungumálakennslu í aðildarlöndum ECML. En einnig forgangsröðun Evrópuráðsins í menntamálum varðandi menntun án aðgreiningar og mannréttindi og lýðræði, þar sem þróun tungumála- og menningarlegrar hæfni leikur lykilhlutverk núna. Boðið verður upp á fjölmargar vinnustofur og verkefni á tímabilinu. 

Hlutverk Rannís

Rannís er tengiliður (Contact Point) ECML á Íslandi. Hlutverk Rannís er að veita upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar. Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands sér um að velja þátttakendur á vinnustofur. Tengiliður HÍ (Nominating Authority) er Eyjólfur Már Sigurðsson  Eyjólfur Már Sigurðsson

Sjá nánari upplýsingar á vef tungumálamiðstöðvarinnar í Graz








Þetta vefsvæði byggir á Eplica