Evrópska rannsóknaráðið (European Research Council) veitir styrki til vísindamanna sem skara fram úr á sínu sviði.
Marie Skłodowska-Curie áætlunin veitir styrki til samstarfsneta háskóla, stofnana og fyrirtækja, auk einstaklingsstyrki til framúrskarandi nýdoktora. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til þjálfunar og þekkingaröflunar doktorsnema og nýdoktora.
Áætlun um rannsóknainnviði styrkir háskóla, stofnanir og aðra aðila sem eiga og reka stóra innviði á sviði rannsókna.
Markmiðið er að styrkja framúrskarandi vísindamenn og auka aðgengi að rannsóknainnviðum. Veittir eru styrki til vísindamanna sem skara fram úr og styðja við þjálfun og þekkingaröflun þeirra. Jafnframt eru veittir styrkir til að byggja upp og auka aðgang rannsakenda að rannsóknainnviðum í Evrópu.
Í gildandi vinnuáætlunum eru upplýsingar um verkefni sem hægt er að sækja um hverju sinni og umsóknarfresti innan áætlunarinnar.
Umfang áætlunar: 25,8 milljarðar evra.
Markmiðið er að styrkja framúrskarandi vísindamenn og auka aðgengi að rannsóknainnviðum. Veittir eru styrki til vísindamanna sem skara fram úr og styðja við þjálfun og þekkingaröflun þeirra. Jafnframt eru veittir styrkir til að byggja upp og auka aðgang rannsakenda að rannsóknainnviðum í Evrópu.
Allir lögaðilar (fyrirtæki og stofnanir) geta sótt um í áætlunina svo lengi sem viðkomandi aðili kemur frá aðildarríki Evrópusambandsins, Íslandi, Noregi og Lichtenstein, auk fleiri ríkja. Listi yfir þau ríki verður birtur um leið og hann er gerður opinber
Ísland er fullgildur aðili að áætluninni og hafa íslenskir aðilar því jafnan rétt og aðilar innan Evrópusambandsins til að sækja um styrki.
Markmiðið Evrópska rannsóknaráðsins (ERC) er að styðja við framúrskarandi rannsóknir í Evrópu á grundvelli samkeppni. Veita vísindamönnum tækifæri til að þróa hugmyndir og rannsóknir á heimsmælikvarða á öllum sviðum vísinda.
Marie Skłodowska-Curie áætlunin (MSC) veitir styrki til þjálfunar doktorsnema, nýdoktora og starfandi vísindamanna og er skilyrði að þjálfun fari fram í öðru landi en heimalandi.
Háskólar, stofnanir og fyrirtæki sækja um styrki í samstarfsnetum en styrkirnir eru ætlaður til þjálfunar doktorsnema og nýdoktora. Einnig geta nýdoktorar (með hámark 7 ár frá doktorsgráðu) sótt um einstaklingsstyrki fyrir þjálfun og rannsóknastöður um allan heim.. Hlekk á síðu
Vinnuáætlun 2021-2027 liggur ekki fyrir en verður auglýst um leið og hún er birt.
Rannsóknainnviðir veita styrki til að auka aðgengi að og samræma rannsóknarinnviði.
Vinnuáætlun 2021- 2027 liggur ekki fyrir en verður auglýst um leið og hún er birt.