Umsóknarferli, mat og úthlutun

Umsóknarferli

Innviðasjóður auglýsir eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknakerfið opnar að minnsta kosti 6 vikum áður en umsóknarfrestur rennur út. Aðeins er hægt að skila umsóknum á rafrænu formi gegnum umsóknakerfi Rannís. Aðgangur að umsóknakerfinu er í gegnum island.is. Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá.

Hvaða viðaukar skulu fylgja umsókn?

  1. Lýsing á innviðum sem sótt er um.
  2. Verðtilboð. Athugið að verð miðast við upphæð án VSK.
  3. Staðfesting á mótframlagi. Mótframlag er ekki undanþegið VSK.
  4. Ferilskrá forsvarsmanns umsóknar og tengiliða meðumsækjenda. 
  5. Staðfesting á þátttöku fyrir allar þær stofnanir sem standa að umsókninni.

Athugið að engin önnur fylgigögn skulu fylgja umsókn.

Mats- og úthlutunarferlið

Sérstakt fagráð metur allar umsóknir og gerir tillögu að úthlutun til stjórnar Innviðasjóðs sem tekur endanlega ákvörðun byggða á almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs, úthlutunarstefnu sjóðsins sem samþykkt er af vísindanefnd og tækninefnd Vísinda- og tækniráðs og fjárframlögum í sjóðinn.

Vinsamlegast athugið að umsækjendur eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að hafa samband við stjórnarmenn eða fagráðsmenn meðan mat umsókna fer fram. Öllum fyrirspurnum og ábendingum skal beina til umsjónarmanna sjóðsins hjá Rannís. Brot á þessu ákvæði getur leitt til þess að umsókn verði vísað frá.

Hvaða atriðum eru öðrum fremur tekið mið af við úthlutun?

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður, markáætlun eða aðrir opinberir samkeppnissjóðir styrkja.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
  • Það styrkir umsókn ef innviðirnir auka möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviðum og leiða til nýliðunar meðal vísinda- og fræðimanna.

Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.

Við mat fagráðs er umsóknum raðað í þrjá flokka:

  • Í I. flokk fara umsóknir sem fagráð telur að beri af og eigi að njóta forgangs í styrkveitingum úr sjóðnum.
  • Í II. flokk fara umsóknir sem eru styrkhæfar og ber að styrkja ef nægt fé er í sjóðnum.
  • Í III. flokk fara umsóknir sem fagráðið telur að ekki beri að styrkja.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica