Gagnatorg Rannís

Á Gagnatorgi Rannís má finna ítarlegar upplýsingar um fjölda umsókna og úthlutanir einstakra sjóða, ár úthlutunar, umsækjendur og stuðningsupphæðir. Einnig verður hægt að fletta upp nánari upplýsingum um einstök verkefni í hnotskurn, þar sem nánari upplýsingar eru tiltækar.

Heimsækja Gagnatorgið

Rannís hefur frá árinu 2009 þróað rafrænt umsóknarkerfi fyrir sjóði sem eru í umsýslu stofnunarinnar. Um er að ræða annars vegar helstu opinbera samkeppnissjóði og réttindasjóði á málefnasviðum Rannís og hins vegar upplýsingar um styrki úr alþjóðlegum samstarfsáætlunum sem Rannís hefur umsjón með. Allar umsóknir sem bárust fyrir þann tíma voru póstlagðar eða smeygt inn um bréfalúgu Rannís rétt áður en umsóknarfresti lauk.

Sjóðir í umsýslu Rannís ráðstafa opinberu fé, sem lagt er upp með sem hvatning til að efla þekkingu, nýsköpun og verðmætasköpun, menntun og menningu í landinu. Mikilvægt er að miðla upplýsingum um hvernig því fé er ráðstafað þannig að almenningur hafi aðgang að upplýsingum um þau verkefni sem unnið er að. Stjórnvöld hafa á undanförnum árum markað stefnu í málaflokknum vísindi og tækni og er Gagnatorgið mikilvægt innlegg til að móta stefnu byggða á gögnum.

Það er ásetningur Rannís að vinna áfram að uppbyggingu grunnsins og byggja ofan á hann mælaborð fyrir stofnunina og ekki síst fyrir aðila utan hennar s.s. almenning, ráðuneyti, alþingismenn, fjölmiðlafólk, og aðra hagsmunahópa.

Þrátt fyrir að hér sé verið að opna fyrir aðgang þennan er vinnunni ekki lokið – og henni lýkur í sjálfu sér aldrei. En hér verður hægt að sækja upplýsingar um úthlutaða styrki og almenna greiningu á t.d. fjölda umsókna, kyn umsækjenda (þar sem það er hægt) og sókn og úthlutun eftir landshlutum. Það verður haldið áfram að endurbæta og leiðrétta þar sem við á og allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar, að ekki sé talað um ef notendur rekast á villur.

Ábendingar má senda á gagnatorg@rannis.is. Beiðni um leiðréttingar verður að sannreyna áður en gögnin eru uppfærð.

Á Gagnatorginu er hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar sem settar eru fram á myndrænan hátt.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica