Rannís leitar að metnaðarfullum og öflugum sviðsstjóra rannsókna- og nýsköpunarsviðs til að leiða 22 manna teymi sérfræðinga í fjölbreyttum verkefnum.
Sviðið er annað tveggja meginsviða stofnunarinnar og fer með umsýslu rúmlega tíu innlendra samkeppnissjóða þar sem þeir stærstu eru Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður, markáætlanir og Innviðasjóður. Þá sér sviðið um þrjá réttindasjóði og skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna þeirra stærstur. Loks sér sviðið um þátttöku Íslands í sex alþjóðlegum áætlunum þar sem Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB er umfangsmest. Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar og tekur virkan þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
Sviðsstjóri ber ábyrgð á verkefnum rannsókna- og nýsköpunarsviðs og að þau séu af þeim gæðum sem stofnunin setur sér. Sviðsstjóri ber jafnframt ábyrgð á áætlanagerð og að halda sviðinu innan þess fjárhagsramma sem settur er. Mótar stefnu fyrir sviðið í samræmi við heildarstefnu Rannís, fylgir eftir að starfsáætlanir sviðsins standist, tryggir árangur verkefna og sviðsins í heild. Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi Rannís og er þar gert ráð fyrir virku framlagi hans varðandi málefni stofnunarinnar og umfjöllun er varðar rannsókna- og nýsköpunarsviðið. Sviðsstjóri vinnur náið með forstöðumanni og öðrum sviðsstjórum að samhæfingu og þróun starfseminnar.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson(hja)rannis.is
Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís og sérstaklega starfsemi rannsókna- og nýsköpunarsviðs og þeirra sjóða og alþjóðlegu áætlana sem sviðið hefur umsjón með.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.