Kynningarfundur Horizon Europe: Fæðuöryggi, lífhagkerfið, náttúruauðlindir, landbúnaður og umhverfismál

Fyrir hverja? Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja.
Hvenær? 29. júní kl. 14:00 – 15:00.
Hvað? Fæðuöryggi, lífhagkerfið, náttúruauðlindir, landbúnaður og umhverfismál (Food, Bioeconomy, Natural Resources, Agriculture and Environment)
Hvar? Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður.

Skráning

Dagana 21. júní - 30. júní stendur Rannís fyrir opnum kynningarfundum á netinu um Horizon Europe þar sem farið verður yfir þjónustu Rannís og helstu áherslur hvers klasa (cluster). Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja. Við viljum benda á að kynningarnar eiga margt sameiginlegt, sérstaklega hvað varðar þjónustu Rannís og umsóknarferlið. Kynningarnar fara fram á íslensku.

Nauðsynlegt er að skrá sig en aðgangur er ókeypis. Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður.

Meðal umfjöllunarefnis:

  • Þjónusta Rannís
  • Umsóknarferlið
  • Meginefni hvers klasa

Að auki mun styrkþegi innan hvers klasa segja frá umsóknarferlinu, áskorunum og hindrunum og svara spurningum ef tími leyfir.

Dagsetningar upplýsingadaga:








Þetta vefsvæði byggir á Eplica