Kynningarfundur Horizon Europe: Félags- og hugvísindi

Fyrir hverja? Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja.
Hvenær? 22. júní kl. 14:00 – 15:00.
Hvað?  Félags- og hugvísindi (Culture, Creativity and Inclusive Society)
Hvar? Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður.

Skráning

Dagana 21. júní - 30. júní stendur Rannís fyrir opnum kynningarfundum á netinu um Horizon Europe þar sem farið verður yfir þjónustu Rannís og helstu áherslur hvers klasa (cluster). Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja. Við viljum benda á að kynningarnar eiga margt sameiginlegt, sérstaklega hvað varðar þjónustu Rannís og umsóknarferlið. Kynningarnar fara fram á íslensku.
Nauðsynlegt er að skrá sig en aðgangur er ókeypis. Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður.
Meðal umfjöllunarefnis:

  • Þjónusta Rannís
  • Umsóknarferlið
  • Meginefni hvers klasa
  • 22. júní kl: 10:00 - Heilbrigðisvísindi (Health)
  • 30. júní kl. 14:00 - Víðtækari þátttaka og efling evrópska rannsóknasvæðisins

Að auki mun styrkþegi innan hvers klasa segja frá umsóknarferlinu, áskorunum og hindrunum og svara spurningum ef tími leyfir.
Dagsetningar upplýsingadaga:








Þetta vefsvæði byggir á Eplica