Kynningarfundur Horizon Europe: Heilbrigðisvísindi (Health)
Fyrir hverja? Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja.
Hvenær? 22. júní kl. 10:00 – 11:00.
Hvað? Heilbrigðisvísindi (Health)
Hvar? Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður
Dagana 21. júní - 30. júní stendur Rannís fyrir opnum kynningarfundum á netinu um Horizon Europe þar sem farið verður yfir þjónustu Rannís og helstu áherslur hvers klasa (cluster). Fundirnir eru einkum ætlaðir starfsfólki háskóla, rannsóknastofnana og nýsköpunarfyrirtækja. Við viljum benda á að kynningarnar eiga margt sameiginlegt, sérstaklega hvað varðar þjónustu Rannís og umsóknarferlið. Kynningarnar fara fram á íslensku.
Nauðsynlegt er að skrá sig en aðgangur er ókeypis. Þau sem skrá sig á kynningarfund fá sendan hlekk á fundinn að morgni fundardags eða daginn áður.
Meðal umfjöllunarefnis:
- Þjónusta Rannís
- Umsóknarferlið
- Meginefni hvers klasa
Að auki mun styrkþegi innan hvers klasa segja frá umsóknarferlinu, áskorunum og hindrunum og svara spurningum ef tími leyfir.
Dagsetningar upplýsingadaga:
- 21. júní kl: 10:00 - Stafræn tækni, iðnaður og geimur (Digital, Industry and Space)
- 21. júní kl: 14:00 - Samfélagslegt öryggi (Civil Security for Society)
- 22. júní kl: 10:00 - Heilbrigðisvísindi (Health)
- 22. júní kl: 14:00 - Félags- og hugvísindi (Culture, Creativity and Inclusive Society)
- 28. júní kl: 14:00 - Loftslagsmál, orka og samgöngur (Climate, Energy and Mobility)
- 29. júní kl: 14:00 - Fæðuöryggi, lífhagkerfið, náttúruauðlindir, landbúnaður og umhverfismál (Food, Bioeconomy, Natural Resources, Agriculture and Environment)
- 30. júní kl. 14:00 - Víðtækari þátttaka og efling evrópska rannsóknasvæðisins
(Widening Participation and Strengthening the European Research Area)