Ferðastyrkir Letterstedtska sjóðsins

11.1.2006

Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.  Íslandsdeild sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2006 og er umsóknarfrestur til 15. febrúar n.k.

Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.

Íslandsdeild sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2006 og er umsóknarfrestur til 15. febrúar n.k.

Ekki er um eiginlega námsstyrki að ræða, heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingaleit á starfssviði sínu, svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum.

Styrkir eru einungis veittir til ferða milli norrænu landanna og Eystrasaltsríkjanna, en hvorki til ferða innan landanna né til uppihalds.

Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um tilgang fararinnar skal senda til ritara Íslandsdeildar Letterstedtska sjóðsins, Snjólaugar Ólafsdóttur, Vesturbrún 36, 104 Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k.

Þór Magnússon, formaður Íslandsdeildar sjóðsins, veitir frekari upplýsingar í s. 551 5320.

Upplýsingar um sjóðinn og styrkveitingar úr honum er og að finna á slóðinni: www.letterstedtska.org

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica