Nýjung frá EMBO

8.5.2006

Vakin er athygli á nýjum styrkjum frá EMBO, svonefndum "EMBO Conference Series" styrkjum.  Styrkir þessir eru ætlaðir til að halda raðir ráðstefna um tiltekið efni í sameindalíffræði og skyldum greinum.

Miðað er við þrjár ráðstefnur á 6 árum og mega þær gjarnan skiptast á við ráðstefnur sem haldnar eru í Bandaríkjunum þannig að annað hvert ár yrði ráðstefnan haldin í Evrópu en hitt í Bandaríkjunum.  Umsóknarfrestir eru 1. febrúar og 1. ágúst árlega.  Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á vefsíðunni http://www.embo.org/courses_workshops/conference_series.html.

 

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica