Hetjur í vísindum: Fyrirlestur Dr. Moshe Y. Vardi fyrir almenning.

1.6.2006

Minnum á fyrirlestur  Dr. Moshe Y. Vardi heldur fyrirlestur fyrir almenning um rökfræði, frá Aristóteles og Evklíð til dagsins í dagí Háskólanum í Reykjavík, 1. júní kl. 16:30.  Allir ættu að geta haft gaman af fyrirlestrinum, en Dr. Vardi hefur haldið fjöldafyrirlestra um heim allan.

Einn af virtustu tölvunarfræðingum í heimi, Dr. Moshe Y. Vardi, verður gestur Þekkingarseturs fræðilegrar tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík í byrjun júní. Hann heldur fyrirlestur fyrir almenning um rökfræði, frá Aristóteles og Evklíð til dagsins í dag.

Allir ættu að geta haft gaman af fyrirlestrinum, en Dr. Vardi hefur haldið fjölda fyrirlestra um heim allan.

Á síðustu fimmtíu árum hafa samskiptin á milli rökfræðinnar og tölvunarfræðinnar aukist mjög mikið. Rökfræði hefur meira að segja verið kölluð "stærðfræðigreining tölvunarfræðinnar" þar sem rökfræðin gegnir, að margra áliti, svipuðu hlutverki fyrir tölvunarfræðina og stærðfræðigreining gegnir fyrir eðlisfræði og hefðbundnar verkfræðigreinar.

Í fyrirlestrinum "And Logic Begat Computer Science: When Giants Roamed the Earth" verður farið yfir söguna og hvernig rökfræðin hefur haft áhrif á þróun tölvunarfræðinnar.

Fyrirlesturinn er áhugaverður fyrir alla þá sem hafa áhuga á verkfræði, stærðfræði, heimspeki, sagnfræði og öllu öðru sem tengist rökfræði, tækni og þróun.

Dr. Vardi starfar sem prófessor í Rice University í reiknifræðilegri verkfræði og er forstöðumaður tölvu- og upplýsingatæknisviðs við sama háskóla. Hann hefur unnið til verðlauna hjá ACM og IBM, hann fékk Gödel-verðlaunin árið 2000 og hefur birt yfir 300 greinar í virtum tímaritum og fræðiritum um allan heim.

Fyrirlesturinn er liður í samstarfsverkefninu Hetjur í vísindum sem Rannís, Samtök iðnaðarins og Félags um eflingu verk- og tæknifræðimenntunar standa fyrir.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica