Jafnréttissjóður - auglýst eftir umsóknum - 1. september 2006

4.7.2006

Hér með er auglýst  eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði.  Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða í ár annars vegar  veittir styrkir til rannsókna á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði bæði að því er varðar launakjör og áhrif og hins vegar til rannsókna á áhrifum gildandi löggjafar hér á landi s.s. lögum um sjálfstæðan rétt feðra til fæðingaorlofs.

Tilgangur jafnréttissjóðs er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri

stöðu karla og kvenna og framgangi jafnréttis.

 

Hér með er auglýst  eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við

hlutverk sjóðsins verða í ár annars vegar  veittir styrkir til rannsókna á

stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði bæði að því er varðar launakjör og áhrif

og hins vegar til rannsókna á áhrifum gildandi löggjafar hér á landi s.s. lögum

um sjálfstæðan rétt feðra til fæðingaorlofs.

 

Gert er ráð fyrir að  sjóðurinn hafi 10 millij. kr. til ráðstöfunar fyrir hvert

starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

 

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjanda. Ekki verða

veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

 

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á

vefsíðu forsætisráðuneytis (www.forsaetisraduneyti.is, jafnréttissjóður). Enn

fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við

Lækjartorg (sími 545 8400, netfang postur@for.stjr.is).

 

Umsóknarfrestur er til 1. september 2006 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi

Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2006. Umsóknir til jafnréttissjóðs skal senda

forstætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.

 

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja

Jafnréttissjóðs.

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica