NordForsk auglýsir eftir umsóknum.

28.8.2006

NordForsk hefur nú opnað fyrir umsóknir annars vegar vegna undirbúningsstyrkja og hins vegar vegna styrkja til námskeiðahalds fyrir doktorsnema.

Undirbúningsstyrkir (Seed Money)

Umsóknarfrestur: 18.september 2006 kl. 16:00 að staðartíma í Noregi

Undirbúningsstyrkjum er ætlað að auðvelda norrænt-/evrópu-/hnattrænt samstarf við undirbúning stærri verkefna.
Gera má ráð fyrir að um 10 undirbúningsstyrkir verði veittir að þessu sinni og styrkupphæðin verði í kringum 100.000 NOK.

Sjá umsóknareyðublað og nánari upplýsingar á heimasíðu NordForsk

Námskeiðahald fyrir doktorsnema (Course scholarships)

Umsóknarfrestur: 18.september 2006, kl. 16:00 að staðartíma í Noregi

Skipuleggjendur námskeiða geta sótt um styrk til að styðja við  þátttöku erlendra doktorsnema í norrænum námskeiðum ætluðum doktorsnemum.

Sjá umsóknareyðublað og nánari upplýsingar á heimasíðu NordForsk.

 

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica