Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

4.9.2006

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu.   EMBL - European Molecular Biology Laboratory býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina.  Umsóknarfrestur er 1.nóvember 2006.

Nemendur, sem teknir eru inn í námið, fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði og samkeppni því mikil. Þeir sem telja sig eiga erindi í doktorsnám í sameindalíffræði hjá EMBL eru hvattir til að kynna sér námið og tilhögun þess og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2006.

Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html.  Athugið að einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til predocs@embl.de.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica