Alþjóðlegur rannsóknarklasi í jarðhita - styrkur úr markáætlun
Engin ein aðferð mun leysa notkun jarðefnaeldsneytis af hólmi heldur þarf að þróa safn valkosta sem beita má ýmist hnattrænt eða staðbundið eftir því sem við á. Í þessari umsókn er lögð fram áætlun um að auka rannsóknir og þróun á sjálfbærri jarðhitaorku og stuðla þannig að því að jarðhiti verði mikilvægt framlag til minnkunar notkunar jarðefnaeldsneytis. Því er lögð til stofnun alþjóðlegs rannsóknaklasa í jarðhita (GEOthermal Research Group (GEORG)). Myndun rannóknaklasans miðar að því að byggja brýr milli aðila á jarðhitasviðinu og mynda þannnig sterkt afl sem mun leiða til þess að vísindalegar og tæknilegar hindranir verða yfirstignar og leiða til fjölgunar sérfræðinga og skjótra framfara í jarðhitarannsóknum, verkfræði, og hönnun. Framtíðarsýn klasans er að verða leiðandi afl í alþjóðlegum jarðhitarannsóknum. Aðalmarkmið klasans eru að:
- Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu með því að þróa sjálfbæra nýtingu á jarðhitaauðlindinni
- Gera Ísland að fyrirmynd sem nánast orkusjálfbært þjóðfélag með nær enga losun gróðurhúsalofttegunda
- Skapa grundvöll fyrir nýsköpun og útrás íslenskra fyrirtækja í jarðhita og menntun, bæði fyrirþátttakendur klasans og með því að skapa frjótt umhverfis innanlands og með alþjóðlegumtengingum