Styrkir til framhaldsnáms í Japan

6.5.2005

Kynningafundur um japanska framhaldsnáms styrkinn Mombukagakusho (MEXT), verður haldin í 19. maí n.k. í Sendiráði Japans, Laugavegi 182, 6h. kl. 16:00

Japanska ríkisstjórnin ætlar að veita Íslendingum Mombukagakusho (MEXT) styrki til framhaldsnáms í Japan. Styrkurinn er veittur til tveggja ára fyrir þá sem hefja nám í apríl 2006 en til 18 mánaða fyrir þá sem kjósa að hefja nám í október 2006. Flugfargjöld og skólagjöld eru greidd og fá styrkþegar mánaðarlega greiðslu, 175.000 Yen sem er nálægt 105 þúsund krónum og auk þess fjárupphæð við komuna til landsins.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.A. eða B.S. gráðu áður en námið hefst og geta aðeins sótt um nám í sínum sérgreinum eða á skyldum sviðum. Skilyrði er að þeir séu fæddir 2. apríl 1971 eða síðar. Upplýsingar um skóla og prófessora má fá hjá Sendiráði Japans svo og allar upplýsingar um nánari skilyrði. Kynningarfundur verður haldinn í sendiráðinu 19. maí nk. kl. 16:00.

Fullgerðar umsóknir þurfa að berast Sendiráði Japans í síðasta lagi 21. júní 2005 en umsóknir má nálgast hjá sendiráðinu eða Menntamálaráðuneytinu. Þeir umsækjendur sem koma til greina verða boðaðir í viðtal til sendiráðsins í águst 2005. Sendiráð Japans í samvinnu við Menntamálaráðuneytið á Íslandi mun sjá um fyrsta úrtak umsækjenda. Lokaákvörðun verður svo tekin af MEXT í Japan.

Áhugasamir geta haft samband við Sendiráð Japans á japan@itn.is og í síma 510-8600.

 

 

 

Reykjavík, 4 May 2005

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica