Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

18.8.2005

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL - European Molecular Biology Laboratory (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar nú sótt um námsdvöl við stofnunina.

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL - European Molecular Biology Laboratory (www.embl.org) býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar nú sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur, sem teknir eru inn í námið, fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði og samkeppni því mikil. Þeir sem telja sig eiga erindi í doktorsnám í sameindalíffræði hjá EMBL eru hvattir til að kynna sér námið og tilhögun þess og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2005. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html. Einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til predocs@embl.de.


Menntamálaráðuneytið, 17. ágúst 2005









Þetta vefsvæði byggir á Eplica