CE/MEDIA – Evrópski samþróunarsjóðurinn (European Co-Development)

24.4.2023

Skiladagur er 26. apríl næstkomandi. Tveir eða fleiri umsækjendur (framleiðslufyrirtæki) frá að minnsta kosti tveimur löndum, sækja um saman um þróunarstyrk fyrir einu verkefni.

Samþróunin er samstarf á öllum sviðum þróunarinnar, því listræna og fjárhagslega sem og markaðsseting og dreifing. Áhersla verður lögð á nýstárlegar aðferðir og verður myndin að vera markaðsvæn fyrir sem flest lönd, bæði innan Evrópu og á alþjóðavísu.

Framleiðslufyrirtæki eiga að vera opinberlega skráð. Að auki verður fyrirtækið að hafa framleitt eftir árið 2016, amk. 24 mínútna teiknimynd, leikna kvikmynd, heimildarmynd og verður myndin að hafa verið sýnd í kvikmyndahúsi, sjónvarpi, eða á stafrænum miðli (digital platform), sem starfar á viðskiptalegum grundvelli.

Myndin sem fyrirtækið hefur framleitt, á að hafa farið í dreifingu til þriggja landa til viðbótar við heimalandið.

Framleiðslufyrirtækið sem sækir um verður að vera aðalframleiðandi (Delegate Producer) á myndinni, til að mega sækja um, meðframleiðendur mega ekki sækja um.

Fyrirtæki sem hefur ekki enn framleitt mynd, má sækja um ef að einn eigenda þess eða framkvæmdastjóri hefur persónulega kredit sem framleiðandi (Producer eða Delegate Producer). Sanna þarf að framkvæmdastjóri hafi starfað sem slíkur með launaseðlum. Einungis framleiðendur (producer) eða aðalframleiðandur (Delegate producer) mega sækja þannig um.

Að uppfylltum þessum skilyrðum, má sækja um þróunarstyrk fyrir mynd sem er:

  • Að minnsta kosti 60 mínútna leikin kvikmynd, heimildarmynd eða teiknimynd fyrir sýningu í kvikmyndahúsi eða 
  • Að minnsta kosti 90 mínútna sjónvarpsmynd eða sjónvarpsþáttaröð eða
  • 24 mínútna teiknimynd eða
  • 50 mínútna skapandi heimildarmynd til sýningar í sjónvarpi eða á stafrænum miðli (digital platform).

Myndin má ekki fara í framleiðslu fyrr en tíu mánuðum eftir skilafrestinn, þ.e.a.s. eftir 26. febrúar 2024. 

Áður en byrjað er á umsókn er betra að lesa fyrst umsóknargögnin og endilega hringja til að fá leiðbeiningar - æskilegt er að nota orðaforðann í umsóknargögnunum í umsókninni. Með bréfinu fylgir vegvísir að umsókninni (Call for Proposal).

Allar MEDIA umsóknir eru auglýstar í MEDIA umsóknagáttinni: Til að finna MEDIA þarf að setja inn ofarlega til vinstri í leitarreit “Type your keywords” og skrifa þar Creative Europe. Þá birtast öll umsóknargögn bæði fyrir MEDIA og Culture.
Hægt er að fá aðstoð við gerð umsókna og skráningu fyrirtækj í gagnagrunn ESB og við gerð umsókna.

MEDIA umsóknagátt 

Aðrir umsóknarfrestir:








Þetta vefsvæði byggir á Eplica