Opið er fyrir umsóknir í Culture Moves Europe

27.3.2024

Ferðastyrkir eru veittir til listamanna og menningarstarfsfólks í Evrópu.

Styrkirnir eru veittir innan þessara sviða: 

  • arkitektúr
  • menningararfur
  • hönnun
  • bókmenntir
  • tónlist
  • myndlist
  • sviðslistir

Hæfi: Einn áfangastaður, eitt verkefni og einn samstarfsaðili í Evrópu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Lengd ferðar er á bilinu 7 - 60 dagar en ef um er að ræða hóp (2-5 manns) er tímabilið 7 - 21 dagur.
Ferðastyrkur er 350 evrur og uppihald 75 evur á dag.

Loka umsóknarfrestur er til 31. maí 2024 en umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega fram að því.

Nánar um kallið: Individual Mobility Action Call  

Nánar um Culture moves Europe








Þetta vefsvæði byggir á Eplica