Opið er fyrir umsóknir um Nordplus undirbúningsheimsóknir

25.8.2023

Umsóknarfrestur um undirbúningsstyrki í Nordplus Junior, leik- grunn- og framhaldsskólastig, Nordplus Voksen, fullorðinsfræðsla og Nordplus Sprog, norræn tungumál er 2. október 2023. 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um undirbúningsstyrki í Nordplus Junior, leik- grunn- og framhaldsskólastig, Nordplus Voksen, fullorðinsfræðsla og Nordplus Sprog, norræn tungumál.

Tilgangurinn með undirbúningsstyrkjum er að auðvelda leit að samstarfsaðilum og undirbúning og þróun umsókna í Nordplus fyrir komandi umsóknarfrest sem er 1. febrúar 2024. 

Umsóknarfrestur er 2. október 2023 og sótt er um rafrænt í gegnum ESPRESSO umsóknarkerfið .

Fyrir nánari upplýsingar um Nordplus áætlunina, dæmi um verkefni og innblástur þá hvetjum við ykkur til skoða heimasíðu Nordplus:

www.nordplusonline.org








Þetta vefsvæði byggir á Eplica