Rafrænn kynningarfundur um Nordplus

23.11.2023

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2024 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 8. desember 2023 kl. 10:00 - 11:00. 

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2024 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 8. desember 2023 kl. 10:00 - 11:00.

Á fundinum verða kynnt öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.

Viðburðurinn er opinn fyrir öll en við biðjum ykkur um að skrá ykkur með því að smella á hnappinn fyrir neðan. 

Skráning hér








Þetta vefsvæði byggir á Eplica