Undirbúningsstyrkir í Nordplus – umsóknarfrestur er 2. október 2017

5.9.2017

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um undirbúningsstyrki í Nordplus Junior, leik- grunn- og framhaldsskólastig, Nordplus Voksen, fullorðinsfræðsla og Nordplus Sprog, tungumál.

Tilgangurinn með undirbúningsstyrkjum er að auðvelda leit að samstarfsaðilum og undirbúning og þróun umsókna í Nordplus fyrir komandi umsóknarfrest sem er 1. febrúar 2018.

Nordplus Sprog , norræna tungumálaáætlunin býður nú möguleika á undirbúningsstyrkjum í fyrsta skipti. Aðaláhersla tungumálahluta Nordplus er á verkefni sem vinna með að auka norrænan málskilning á öllum skólastigum, aðallega dönsku, norsku og sænsku og meðal barna og ungmenna. En frá og með næsta umsóknarfresti er einnig hægt að sækja um samstarfsverkefni sem miða að því að kenna innflytjendum og flóttamönnum norræn tungumál þ.m.t íslensku og/ eða verkefni er varða framþróun í þessum málum. Einnig er hægt að sækja um styrk til að mynda samstarfsnet þeirra sem kenna innflytjendum norræn tungumál til að miðla reynslu sinni og læra hver af öðrum

Umsóknarfrestur er 2. október 2017 og sótt er um rafrænt í gegnum ESPRESSO umsóknarkerfið .








Þetta vefsvæði byggir á Eplica