Velkomin á Nordplus Café!

13.12.2023

Ert þú að hugsa um að sækja um verkefnastyrk til Nordplus fyrir 1. febrúar 2024? Þá mælum við með að þú kíkir á rafrænt Nordplus Café í byrjun janúar 2024!

  • Kona í hjólastól situr á veffundi

Þann 9. janúar næstkomandi kl. 13:00 verður rafrænn upplýsingafundur haldinn um næsta umsóknarfrest í Nordplus sem verður 1. febrúar 2024. Fundargestum verður skipt í hópa eftir undiráætlunum og farið verður í smáatriðum yfir umsóknarferlið í hverri undiráætlun fyrir sig.  Ef þið hafið í huga að sækja um styrk fyrir næsta umsóknarfrest þá hvetjum við ykkur til að skrá ykkur á þennan fund og jafnframt skrá ykkur sem fyrst í umsóknarkerfið Espresso og byrja á umsókn. 

Umsjónarmenn alla undiráætlana Nordplus stjórna fundinum og segja frá umsóknarferlinu, svara spurningum og gefa góð ráð. Hægt er að sækja um styrk í öllum undiráætlunum Nordplus.

Undiráætlanir Nordplus: 

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Nordplus

Nauðsynlegt er að skrá sig en opið er fyrir skráningar til og með mánudeginum 8. janúar 2024. Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku. 

Skrá mig á Nordplus Café

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá má alltaf hafa samband við starfsfólk Nordplus á Íslandi: Senda póst








Þetta vefsvæði byggir á Eplica