2018 - 2019

38 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2018-2019.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2018-2019. Sjóðnum bárust alls 83 umsóknir og var heildarupphæð umsókna rúmar 190 millj. kr. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 54 millj. kr.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru:

  • Menntun fyrir alla
  • Verklegt nám
  • Vellíðan

Að þessu sinni voru töluvert færri umsóknir en undan farin ár. Skiptin umsókna milli skólastiga var eftirfarandi: Verkefni í leikskólum 15, í grunnskólum 45, í framhaldsskólum 18 og þvert á skólastig 5 umsóknir (þar af voru 1 umsóknir frá grunn- og framhaldsskólastiginu og 4 umsóknir frá leik- og grunnskólastiginu). 

Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Sprotasjodur_uthlutun_2018-2019








Þetta vefsvæði byggir á Eplica