Evrópskir rannsókna- og nýsköpunardagar í september 2022

29.8.2022

Dagarnir sem eru rafrænir verða haldnir 28. og 29. september nk. og eru öllum opnir. Um er að ræða árlegan viðburð á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Evrópskir rannsókna- og nýsköpunardagar (European Research and Innovation Days) eru nú haldnir í fjórða sinn en þeir voru seinast haldnir í júní 2021. Þá voru þeir rafrænir og er svo einnig í ár og því eiga fleiri þess kost að taka þátt.

Þó viðburðurinn sé rafrænn er nauðsynlegt að skrá þátttöku:

Skráning

Markmiðið með viðburðinum er að stefnumótendur, vísindamenn, frumkvöðlar og almenningur komi saman til að ræða og móta framtíð rannsókna og nýsköpunar í Evrópu og víðar.

Kynntu þér dagskrána og undirbúðu þig að ræða framtíð rannsókna og nýsköpunar við aðra þátttakendur víðsvegar að frá Evrópu og víðar.

Dagskrá

English








Þetta vefsvæði byggir á Eplica