Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe - stafræn tækni/digital hluti áætlunarinnar

18.11.2021

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 29. nóvember - 3. desember nk. í tengslum við Horizon Europe umsóknir á sviði Stafrænnar tækni, iðnaðar og geims.

Rannís vekur athygli á rafrænum upplýsingadögum og tengslaráðstefnu fyrir styrkumsóknir í áætluninina Stafræn tækni, iðnaður og geimur sem er undir Stoð 2 - Áskoranir og samkeppnishæfni

Markmiðið er að upplýsa áhugasama umsækjendur um vinnuáætlun áætlunarinnar  en ekki síst að gefa mögulegum umsækjendum tækifæri á að komast í kynni við aðra umsækjendur með það að markmiði að setja saman samstarfshóp um umsóknirnar. 

Þátttaka er ókeypis og opin fræðimönnum, sérfræðingum og fyrirtækjum í málaflokknum. Rannís veitir frekari upplýsingar um þessa viðburði og umsóknir í Horizon Europe.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica