Auglýst eftir styrkjum úr Tónlistarsjóði

18.3.2022

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarfólki og tónsköpun þess.

Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði eru veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn.

Umsóknarfrestur rennur út 2. maí 2022 kl. 15.00.

Viðspyrnuaðgerðir ríkisstjórnar sem kynntar voru síðastliðinn janúar hækka Tónlistarsjóðinn um 50 milljónir króna árið 2022. Þetta aukna fjárframlag er ætlað viðburðarhaldi á árinu.

Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (sjá leiðbeiningar) fyrir lok umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar á síðu Tónlistarsjóðs









Þetta vefsvæði byggir á Eplica