Námskeið: að skrifa samkeppnishæfa umsókn í Horizon 2020

25.6.2019

Föstudaginn 30. ágúst 2019 verður haldið hálfsdags námskeið í gerð umsókna fyrir væntanlega umsækjendur í Horizon 2020 og Horizon Evrópu.  

  • NOS-HS-frett

Námskeiðið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík (í Gullteig B), föstudaginn 30. ágúst kl. 9:00-12:30. Leiðbeinandi er Dr. Sean McCarthy frá Hyperion Ltd. á Írlandi sem er einn eftirsóttasti ráðgjafinn á þessu sviði í Evrópu. 

Námskeiðið fer fram á ensku og er ætlað umsækjendum og verkefnastjórum, jafnt sem rannsóknarstjórum og öðrum sem hafa áhuga á að bæta færni sína í að skrifa samkeppnishæfa umsókn í rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB.

Námskeiðsgjald er 28.000. Námskeiðsgögn, morgunverður og kaffi innifalið í verðinu.

Skrá þarf þátttöku hér, fyrir miðvikudaginn 28. ágúst.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica