Hugbúnaðarsérfræðingur

1.9.2021

Rannís óskar eftir að ráða hugbúnaðarsérfræðing í fullt starf. Starfið felst í hönnun, hugbúnaðargerð og umsjón með umsókna-, umsýslu- og upplýsingakerfum fyrir Rannís.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði hugbúnaðarfræða eða annað sambærilegt nám skilyrði
  • Þekking og reynsla á PHP, SQL, JavaScript og Java er æskileg
  • Reynsla af hugbúnaðargerð, Agile og Scrum er æskileg
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Upplýsingar um starfið veitir Berglind Fanndal Káradóttir, sviðsstjóri greininga- og hugbúnaðarsviðs,í síma 515 5816 eða í netfangið berglind.fanndal(hja)rannis.is.

Umsóknafrestur var til og með 14. september 2021.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.


Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica