Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð EES – tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki

4.3.2022

Rannís, Íslandsstofa og Orkustofnun standa að kynningarfundi í Sjávarklasanum og rafrænt þriðjudaginn 8. mars nk. frá 13:00-14:00 um tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES.

 Sérstök áhersla verður lögð á útboð á Grikklandi með áherslu á grænar lausnir, bláa hagkerfið og upplýsingatækni. Sérstakur rafrænn kynningarfundur með grískum, norskum og íslenskum aðilum vegna útboðsins fer fram á B2Match þann 10. mars. Einnig verður kynnt fyrirtækjastefnumót um bláa hagkerfið í Evrópu sem fram fer 10.-11. maí í Aþenu og verða ferðastyrkir í boði.

Dagskrá:

  • Uppbyggingarsjóður EES með áherslu á nýsköpunar- og viðskiptaþróunaráætlunina
    Borgar Þór Einarsson, varaframkvæmdastjóri Uppbyggingarsjóðs EES
  • Tækifæri fram undan á vegum Uppbyggingarsjóðsins á Grikklandi og víðar
    Rannís, Íslandsstofa og Orkustofnun
  • Reynslusögur af samstarfi í gegnum Uppbyggingarsjóðinn
    Anna Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evris

Léttar veitingar verða í boði fyrir þá sem taka þátt á staðnum.  Rafrænn hlekkur verður sendur út til skráðra þátttakenda fyrir fundinn.

Skráning er nauðsynlegt hvort sem viðkomandi verður á staðnum eða rafrænt:

Skráning á viðburð

Frekari upplýsingar veita er Egill Þór Níelsson hjá Rannís og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir hjá Íslandsstofu. 

Staður: Sjávarklasinn, Grandagarði 16, 101 Reykjavík og rafrænt

Stund: Kl. 13 - 14 þriðjudaginn 8. mars 2022









Þetta vefsvæði byggir á Eplica