Fundur um opinber innkaup til nýsköpunar 25. maí

20.5.2011

Rannís og Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um möguleika til að nýta opinber innkaup sem tæki til að örva nýsköpun í samfélaginu. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu, miðvikudaginn 25. maí kl. 13:30-17. Skráning árannis@rannis.is

Opinber innkaup til nýsköpunar
Public Procurement for Innovation
Miðvikudaginn 25. maí kl. 13:30-17:00 á Hótel Sögu

Opinber innkaup til nýsköpunar er hluti af Evrópuverkefni með þátttöku Rannís en markmið þess er að vinna að tillögum um skilvirkni nýsköpunar ásamt því að þróa mælingar á áhrifum nýsköpunar í litlum löndum. Fundurinn á erindi jafnt til opinberra aðila sem starfa við innkaup eða móta innkaupastefnur og fyrirtækja sem gagn hafa af slíku samstarfi við hið opinbera.

Samkvæmt niðurstöðum könnunar um stöðu og umfang opinberra innkaupa, sem gerð var samtímis í 6 öðrum litlum ríkjum í Evrópu, leiddi í ljós að lítið hefur reynt á það að opinber innkaup séu nýtt til þess sérstaklega að örva nýsköpun, rannsóknir og þróun í löndunum. Þó var það samhljóma álit þátttakenda að þörfin á umræðu um þennan málaflokk væri mikil, sérstaklega nú á tímum efnahagslegra erfiðleika.

Opinber innkaup til nýsköpunar er hugsanlega vannýtt aðferð við að styðja við nýsköpun. Opinberir aðilar, hvort sem um ræðir ríki eða sveitarfélög, kaupa inn vörur og þjónustu frá innlendum og erlendum aðilum og gætu því, ef rétt er staðið að, beint þessum kaupum að nýsköpunarfyrirtækjum og hvatt þau til þess að koma fram með nýjar eða breyttar afurðir.

Hópur innlendra og erlendra aðila koma að fundinum og deila reynslu sinni. Luke Georghiou frá Háskólanum í Manchester hefur verið ráðgjafi Evrópusambandsins á þessu sviði og David Golding hjá Technology Strategy Board hefur unnið að þróun þessara mála um árabil.

Dagskrá

13:30   Opnunarávarp  Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís

13:40   European Cooperation on Public Procurement for Innovation
Luke Georghiou, Manchester Institute of Innovation Research, Manchester University

14:25    Opinber innkaup til nýsköpunar á Íslandi
Guðmundur Hannesson, Ríkiskaupum

14:45   Hverjar eru helstu hindranir nýsköpunar í gegnum opinber innkaup á Íslandi?
Svandís Nína Jónsdóttir sérfræðingur á greiningarsviði Rannís

15:00   Notkun opinberra innkaup til að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi
Orri Hauksson, Samtökum iðnaðarins

15:30   Kaffihlé

15:50   SBRI and Innovation Platforms
David Golding, Head of Strategy,  Technology Strategy Board

16:20   Options for EU support for Procurement of Innovation
Abby Semple, ICLEI Europe









Þetta vefsvæði byggir á Eplica