Styrkir til verkefna á sviði rafrænnar stjórnsýslu

6.9.2011

Rannsókna- og þróunarstyrkir samtals að upphæð kr. 154 MKR til rafrænnar stjórnsýslu: Citizen-Centric eGovernment Services 2011.

Fyrirtæki, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og háskóladeildir geta nú í annað skipti sótt um rannsókna- og þróunarstyrki í þessa áætlun sem er samstarfsverkefni Rannís, VINNOVA í Svíþjóð, ráðuneyti efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi og NordForsk. 

Markmið áætlunarinnar  er að þróuð verði frumgerð að nýrri opinberri rafrænni þjónustu, eða að þjónusta sem er fyrir hendi er verði bætt verulega með þarfir borgara og samfélagsins í huga. Í hverju verkefni skal vera amk. einn aðili frá hverju samstarfslandanna þriggja (Eistlandi, Íslandi og Svíþjóð) og má fá lista með mögulegum samstarfsaðilum í Svíþjóð og Eistlandi senda frá msb@hi.is. Eingöngu fulltrúar þessara landa verða styrktir, en þátttakendur í verkefninu mega vera frá öllum Evrópuríkjum. Í hverju verkefni verða einnig að vera amk. einn fulltrúi opinberrar stjórnsýslu, einn frá rannsóknastofnun eða háskóla og einn frá fyrirtæki. 

Til úthlutunar eru 8,3 milljónir sænskra króna, að jafnvirði um 154 milljóna íslenskra króna. Reiknað er með að 4-6 verkefni hljóti um 2 milljónir sænskra króna í styrk. Lengd verkefna getur verið frá 12 upp í 36 mánuði.Umsóknafrestur er til 4. október nk

Tengiliðir sem aðstoða við að finna samstarfsaðila í viðkomandi landi eru: 
Ísland: Margrét S. Björnsdottír, University of Iceland/RANNIS msb@hi.is Tel: + 35 45254928 Svíþjóð: Madeleine Siösteen Thiel, VINNOVA, 
madeleine.siosteen-thiel@VINNOVA.se Tel: + 46 8 473 3142 Eistland: Katrin Hänni, Ministry of Economics and Communication, Katrin.hanni@riso.ee Tel: + 37 26397604 

Um er að ræða framhald verkefnis sem á þessu ári styrkti fimm baltnesk-norræn þróunarverkefni; um aðgang almennings að tölulegum upplýsingum hagstofa, að skjölum opinberra skjalasafna, um rafræna heilbrigðisþjónustu, rafrænar umsóknir um byggingaleyfi og heildarkerfi aðgangs borgara að rafrænni þjónustu ( Citizen E-hub). Íslensku styrkþegarnir voru; SKÝRR, IDEGA, Hagstofan, Mannvirkjastofnun  og Þjóðskjalasafnið. 

Áhugasömum aðilum er bent á að lesa vel texta um tilgang, æskilegar afurðir og hvaða þættir eru styrktir  áður en umsóknarundirbúningur hefst:  http://www.vinnova.se/EffektaXML/Utlysningar/2011-00531/Call2_Citizen-Centric%20_eGovernment%20Services(325743)_TMP(327512).pdf 

VINNOVA sér um umsýslu áætlunarinnar. Nánari upplýsingar er að finna hér: http://www.vinnova.se/sv/Utlysningar/Effekta/Citizen-Centric-eGovernment-Services-2011/


Hjá VINNOVA eru einnig til aðstoðar: 
Anna Bjurström: Anna.bjurstrom@VINNOVA.se Tel: + 46 8 4733089 
Johan Lindberg: Johan.lindberg@VINNOVA.se Tel: + 46 8 473 6453 
Annie Palm, administrative support: Annie.palm@VINNOVA.se Tel: + 46 8 4733037









Þetta vefsvæði byggir á Eplica