Ný COST verkefni samþykkt
Nú hafa 27 ný COST verkefni verið samþykkt. Hér að neðan er listi yfir ný verkefni með tenglum í frekari upplýsingar, sem hægt er að finna á heimasíðu COST.
Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum
rannsóknasviðum. Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og
niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir.
Verkefnið greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en greiðir
ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt
til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri
verkefni.
Ísland getur tilnefnt tvo fulltrúa í hvert verkefni. Aðkoma að þessum
verkefnum er mjög einföld og öllum opin fyrsta ár verkefnisins.
Áhugsamir hafi samband við Katrínu Valgeirsdóttur hjá Rannís.