Arctic Studies ferðastyrkir fyrir fræðimenn og stúdenta á milli Íslands og Noregs

5.2.2014

Samstarf milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða.


Science Cooperation Fund – Samstarfs íslenskra og norskra stofnana - Umsóknarfrestur 2. maí 2014

Styrkir til starfsmanna: Til einstaklinga eða hópa. Hægt að sækja um 8 ferðir í einni umsókn.

Ferðastyrkur: 500 – 1.100 €

Dagpeningar:  260 € í Noregi: 260 € /  180 € á Íslandi.

Einstaklingar geta sótt um en umsóknir frá stofnunum hafa forgang.

Hægt er að sækja um styrk fyrir þátttöku sérfræðing frá þriðja landi ef ljóst er að það styrki samstarfið.

Stuttar námsferðir stúdenta á  öllum námsstigum en forgangur á meistara og doktorsstig. 

Styrkur fyrir viku dvöl fyrir allt að 24 stúdenta (12 IS +12 NO).

Umsóknir með gagnkvæmum stúdentaheimsóknum hafa forgang.

Ferðastyrkur: 500 – 1.100 €

Uppihaldsstyrkur: 250 € í Noregi og 200 € á Íslandi


Exchange Scholarship Fund – Stúdentaskipti - Umsóknarfrestur 15. mars 2014

(Tekið er við umsóknum til 2. maí)

Námsdvöl í 1-12 mánuði sem getur falist í námi, rannsóknarvinnu og/eða starfsnámi.

Ferðastyrkur: 1.200 €

Uppihaldsstyrkur á mánuði: 520 €

Stúdentar sækja um.

Styrkt dvöl þarf ekki að vera samfelld, má t.d. vera einn mánuður á haustmisseri og annar á vormisseri. 

Allar nánari upplýsingar hér.

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica