Námskeið í gerð umsókna í Erasmus+

24.2.2014

Námskeið í gerð umsókna um nám og þjálfun í Evrópu

Erasmus+ er ný styrkjaáætlun Evrópusambandsins á sviði menntamála, æskulýðsstarfs og íþrótta sem gildir 2014-2020. Markmið Erasmus+ er að auka gæði og stuðla að samstarfi í menntun og þjálfun innan Evrópu, en 34 Evrópulönd eiga aðild að áætluninni. Rannís er landskrifstofa menntahluta og íþróttahluta áætlunarinnar.

Nám og þjálfun veitir starfsfólki á öllum skólastigum og nemendum í starfsmenntun og á háskólastigi tækifæri til að sinna námi, starfsþjálfun eða kennslu í þátttökulöndum Erasmus+. Hægt er að sækja um ferða-, uppihalds- og námskeiðsstyrki.


Námskeiðin verða haldin í húsnæði Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7, sem hér segir: 

Starfsmenntun
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 14:00-16:00

Leik-, grunn- og framhaldsskólar, listnámsskólar og fullorðinsfræðslustofnanir
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 14:00-16:00 


Skráning fer fram á erasmusplus@rannis.is. Á námskeiðunum verður farið yfir umsóknarferlið, umsóknareyðublöð skoðuð og verkefnishugmyndir ræddar. Hægt er að óska eftir aðgengi í gegnum fjarfundabúnað símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.

Fræðslu- og menntastofnanir á öllum skólastigum geta sótt um styrki í Erasmus+. Einnig eiga fyrirtæki, samtök og aðrir lögaðilar sem sinna menntun rétt á þátttöku.

Umsóknarfrestur fyrir náms- og þjálfunarferðir er til 17. mars 2014.

Nánari upplýsingar um  Erasmus+  er að finna á www.erasmusplus.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica