Ný COST verkefni samþykkt
Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir. Verkefnið greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni.
Ísland getur tilnefnt tvo fulltrúa í hvert verkefni. Aðkoma að COST verkefnum er einföld og öllum opin fyrsta ár verkefnisins.
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið veitir Katrín Valgeirsdóttur hjá Rannís, sem hefur umsjón með COST á Íslandi. Nánar um COST hér.
Eftirtalin verkefni voru samþykkt síðari hluta árs 2014: