Auglýst er eftir umsóknum úr Barnamenningarsjóði
Tæpar fjórar miljónir eru til úthlutunar. Umsóknarfrestur er til 16. mars kl. 17:00
Barnamenningarsjóður styrkir verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna. Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum nr. 594/2003.