Úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna 2014

11.4.2014

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið mati umsókna og liggur úthlutun sumarsins 2014 nú fyrir.

Sjóðnum bárust alls 247 umsóknir í ár fyrir 370 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 4. mars síðastliðinn. Alls var sótt um tæplega 180 milljónir króna eða laun í 1057 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 74,5 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 100 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 40,5%). Í styrktum verkefnum eru 154 nemendur skráðir til leiks í alls 438 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um styrkveitinguna. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2014. Listinn er birtur með fyrirvara um villur. Verkefnin eru skráð eftir nafni umsjónarmanns (umsjónarmanna) og titli verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns (umsjónarmanna) og þann fjölda nemenda og mannmánuða sem verkefnið er styrkt um.

Hér má nálgast heildarlista yfir verkefni sem hljóta styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2014.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica